Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Sól og sumar
Silja ritaði 5.April 2009

Þeir sem eru orðnir þreyttir á sjúkrasögum ættu að sleppa fyrripart bloggsins en þeir sem geta ekki beðið eftir að heyra meira um ævintýrið mitt lesa bara áfram.

Síðast sagði ég að gipsið meiddi mig og að ég fengi eflaust nýtt og það gerðist líka. Var svo með þetta blessaða gips i rúmlega eina viku tilviðbótar og orðin frekar leið og pirruð yfir þessum klump auk þess sem það var komin frekar vond lykt af því. Aumingja þeir sem eru með sama gips í 6-8 vikur, þetta er ógeð. Fór svo alla veganna á fimmtudaginn var í röntgen og þá tóku þeir fyrst af mér gipsið og saumanna eða réttara sagt heftin, kíkti nú á það fyrst í spegli og það er frekar óhugnanlegt að sjá húðina bara heftaða saman eins og maður sé eitthvað skrímsli. Röntgenin var í góðu lagi og ég bara send heim án gips með litinn teygjusokk til að minnka bólguna. Reyndar var ég send í pyntingar (sjúkraþjálfun) fyrst, til þess að byrja að reyna hreyfa þennan dauða útlim enda hangir höndin á mér bara sem dauður fiskur við hliðina á líkamanum mínum. Er farin að geta strekkt ansi vel úr olnboganum en ekki beygt mikið meira en 90° að líkamanum. Gleðifregnirnar eru þó að nú get ég farið í sturtu alveg sjálf og því ekki eins fötluð þó að ég geti ekkert notað höndina heldur á ég bara að nota hana sem hjálparhönd án þess að setja neinn þunga á hana. Svo held ég áfram að fara í sjúkraþjálfun og reyni að vekja höndina til lífs aftur með að gera æfingar nokkrum sinnum á dag.

Nú megið þið hin antisjúkrasögu fólk byrja að lesa.

Annars byrjaði ég í nýjum áfanga núna á mánudaginn, Livsloppet. Í þessum áfanga fáum við að gera allskonar skemmtileg verkefni, fáum aftur klient sem við eigum að taka viðtöl við og út frá þeim greina persónuleika einstaklingsins, við munum fá úthlutað barni og leggjum greindarpróf (WIPPSI-III fyrir sálfræðinörda) fyrir það, tökum viðtal við ellilífeyrisþega yfir 75, (þarf að hössla einhvern sjálf) og allskonar skemmtilegheit. Svolitið mikið að gera svona í byrjun en það verður rólegra í lok mánaðarins. Þá koma líka foreldrar hans Hjalta í heimsókn til okkar, sem verður eflaust ósköp gaman.

Hjalti er núna komin í 3 vikna páskafrí og er búin að eyða fyrstu dögunum í tölvunni sinni (Fallout fyrir alvöru nörda) á meðan ég sit úti í sólbaði að læra. Reyndar er strákurinn mjög duglegur að fara út að hlaupa, en ég sit bara heima með bilaða hendi og get ekkert hreyft mig sökum verki.

Það sem annars er að frétta héðan frá Sverige er að það er komið vor, í síðustu viku er búið að vera sól og sumar, yfir 10 stiga hita og heiðskýrt, í gær var t.d 17 stiga hiti. Maður hefði nú haldið að Svíinn væri vanur við að fá sól og ekki eins sjúkur í sól eins og Íslendingurinn. Strax og það kom sól og hiti fóru allir í ríkið eða á næsta bar og keyptu sér bjór og lögðust svo niður i grasið eða settust á torgið og fengu sér einn kaldann. Svo hlaupa þeir allir út í frímínútunum og reyna að sleikja sólina eins mikið og hægt er. Ekki kvarta ég svosem enda fíla ég sólina í botn en það er eins og allir hafa þjáðst af erfiðu skammdegis þunglyndi og fara upp í maníu því að það er komin sól.

Þar til næst.

Share on Facebook
 
1 hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Erna Björk sagði klukkan 13:00 þann 8.April 2009
 
Þar sem að það er far til ykkar, þá er til krem sem heitir Vöðvagaldur og er víst mjög magnað á bólgur verki o.fl. http://www.villimey.is/nytt/?sida=forsida Njótið sólarinnar. EB
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð