Fyrir ykkur sem eru ekki með Facebook, þá er ég með góðar fréttir. Við Hjalti fengum úthlutað íbúð á fimmtudaginn seinasta og ekki nóg með það, heldur fáum við hana afhenta á mánudaginn kl 14. Ég var nú reyndar búin að gefast upp á þessum íbúðarmálum og bjóst við því að við myndum bara búa hjá Svajunasi fram á sumar og fá íbúð þegar við kæmum til Svíþjóðar aftur.
Fengum að skoða íbúðina á föstudaginn, þetta er reyndar ekki alveg íbúðin sem við höfum verið að bíða eftir enda frekar lítil fyrir okkar smekk, bara 44 m2. En við ætlum bara að vera þarna þar til við fáum stærri íbúð. Þetta er sem sé 2 herbergja íbúð með litlum eldhúskrók á Kjammanum (Kämnersvägen). Hún er staðsett í fléttu af litlum blokkum á tveimur hæðum og við erum á fyrstu hæð. Mældum alla mögulega fleti í íbúðinni og fórum svo heim og skoðuðum Ikea bæklinginn og pældum fram og tilbaka. Fórum svo í dag í Ikea og þar eyddum við góðri summu og fáum húsgögnin send heim til okkar á mánudaginn. Ætlum svo í rúmfatalagerinn á morgun og kaupa okkur rúm.
Svo ætla pabbi minn og mamma hans Hjalta að koma búslóðinni okkar í vöruhús Eimskip á mánudaginn og hún fer af stað á þriðjudaginn. Þannig að þetta eru mjög góðir tímar en reyndar dálitið dýrir líka.
Setjum ínn myndir þegar við erum komin með lyklanna og dótið frá Ikea  |