Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Prófavika
Hjalti ritaði 17.October 2008

Jæja, þá er fyrsta önnin búin hjá mér og komið að prófaviku. Ég er reyndar bara í einu prófi núna þannig að þetta er nú ekki neitt svakalegt stress hjá mér. Í hinum tveimur áföngunum sem ég er í er núna komið að verklega hlutanum. Í áfanganum Realtime programming eigum við að forrita videómyndavéla eftirlitskerfi. Í hinum áfangunum, Industrial measurement systems for control fengum við nokkrar tillögur að verkefnum en á meðan við notumst við eitthvað af því sem kennt er í áfanganum þá megum við gera hér um bil hvað sem er. Við Gummi ætlum að vinna þetta verkefni saman og erum komnir með einhverjar hugmyndir. Ef þið hafið einhverjar skemmtilegar hugmyndir að hagnýtu verkefni endilega komið með uppástungur.

Samferða þessum tveimur verkefnum byrja ég í tveimur nýjum áföngum. Ég þarf að taka raforkuverkfræði og iðnaðar hagfræði (industrial ekonomy). Ég veit ekki hvernig þessi raforkuverkfræði áfangi er en hef hins heyrt margt og mikið um þennan hagfræði áfanga. Versta er þó að allt sem ég hef heyrt er slæmt, þetta er víst mjög fjarri því að vera skemmtilegur áfangi. Annars er kannski bara gott að læra einhverja hagfræði í þessu árferði.

Annars er nú ekki mikið að frétta héðan frá Lundi. Meðan íslenska krónan er svona verðlaus reynum við bara að kaupa ekkert nema nauðsynjavörur. Maður er nú bara hálf feginn að vera ekki kominn með íbúð núna þar sem við þurfum ekki að kaupa húsgöng á þessum óhagstæðu tímum.

Jæja, ætli maður verið ekki að reyna að fara að læra aðeins fyrir þetta próf.

Share on Facebook
 
1 hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Arndís sagði klukkan 12:15 þann 18.October 2008
 
sorrý, get ekki hjálpað þér með verkefnið. En vildi bara kvitta;)
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð