Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Söngur vs ískur
Silja ritaði 9.March 2009

Jæja smá fréttir hérna af okkur á Kjammanum.  Lísa, Ida, Natalie og ég

Hélt smá matarboð fyrir stelpurnar sem komu inn á “senare del” eins og ég á fimmtudaginn 26 feb, reyndar voru nokkrar sem hættu við, þannig að við urðum bara 4 plús Hjalti sem var bara rosa kósi, enda stelpurnar sem ég þekki best og við náum líka allar svo vel saman. Auk þess sem það var meiri en nóg súkkulaðikaka fyrir okkur sem ég hafði bakað. 

Svo á laugardaginn (28 feb) komu Björg og Hjörtur í heimsókn frá Köben. Þau komu með hjólin sín og við hjóluðum um allan bæinn, borðuðum á mjög góðum pizzastað og enduðum svo heima hjá okkur, fengum okkur smá kaffi og með því sem ég hafði bakað. Strákarnir léku sér svo í ps3 og svo borðuðum við góðan kvöldverð og ís og marengstoppa í eftirrétt. Svo fóru þau heim um kvöldið, það var alveg æðislegt að fá þau í heimsókn. Björg og Hjörtur i Statsparken

Annars ekki mikið að frétta, okkur líður alveg rosalega vel hérna á Kjammanum, gott að vera komin heim til sín enda hefur maður í raun ekki fundið þá tilfinningu síðan í sumar. Svo er strákurinn á efrihæðinni svo duglegur að spila á gítar og syngja fyrir okkur ( hann er t.d. að því akkúrat núna) mér finnst það nú reyndar óþarfi þegar hann fer að stappa i takt líka og syngja falskt. Ef við erum ekki með live tónlist þá er hann svo góður við okkur að spila tónlist frekar hátt svo að við heyrum nú örugglega hvað við eigum að vera að hlusta á. En hann spilar nú reyndar ekki tónlist eftir kl 23 þannig að maður er nú ekkert að kvarta. Hins vegar eru Indverjarnir í næstu íbúð við hliðina með dálítil læti enda kannski ekki svo skrítið – þeir eru fjórir og búa í einsherbergja íbúð. Útidýrahurðin þeirra (sem er beint fyrir utan svefnherbergið okkar) ískrar auk þess sem baðherbergishurðin (sem virðist vera nálægt útidýrahurðinni þeirra) ískrar líka, einhver þeirra vaknar til dæmis alltaf um sex leitið og fer á klóið og þá vakna ég líka.

Hjalti hefur haft frekar rólegan tíma núna seinustu vikur en núna er komið að próflestri hjá honum. Hann fer í eitt próf á laugardaginn næsta. Hins vegar hef ég haft þó nokkuð mikið að gera seinustu vikur en er næstum því í fríi næstu þrjár vikur. Eina sem ég þarf að gera er að skrifa tvær litlar skýrslur, önnur um útkomu á greindarprófi sem ég lagði fyrir stelpu á föstudaginn og svo hin um persónuleika stelpu sem ég hitti á miðvikudaginn. Ég á að dæma persónuleika hennar út frá viðtali auk þess sem ég legg fyrir hana tvö persónuleikapróf (Fyrir sálfræðinörda: prófin eru NEO og TAT).

Svo keyptum við okkur flugmiða heim, ég kem þan 26 maí og Hjalti kemur heim þann 28 maí. 

Bless í bili.

Share on Facebook
 
1 hefur tjáð sig um þessa færslu
 
Vilhjálmur Ásmundsson sagði klukkan 12:58 þann 9.March 2009
 
Jæja, ég kem ekki nálægt þessum ís með marengs aftur!! En hlakka til að sjá ykkur í sumar
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð