| Roadtrip 2009 |
| Silja ritaði 31.August 2009 |
Ætlaði nú bara svona að segja ykkur frá ferðinni okkar. Við byrjuðum á að sækja bílinn okkar á bensínstöðinni hérna aðeins neðar í götunni okkar. Var búin að segja ykkur að hann væri blár og appelsínugulur en það var ekki rétt. Við fengum nefnilega annan bíl þetta skiptið, Yaris iQ (hvítur og appelsínugulur) alveg pínku lítill bil, eins gott að við vorum bara tvö í þessari ferð. Reynar var þetta hagstæðasti bíllin fyrir okkur þar sem hann eyddi bara 4,6 l. á hundraði og við keyrðum um 1400 km á þessum fjórum dögum. Hún Stína (sem ég hef ákveðið að kalla nýju græjuna hans Hjalta – Garmin GPS tæki) hjálpaði okkur að rata þó að ég hafi nú samt verið á kortinu og við konurnar hans Hjalta (ég og Stína) voru nú ekki alltaf sammála. Hún fór oft alveg í kerfi þegar Hjalti hlustaði á mig en ekki hana. En hér getið þið séð hvar við keyrðum.
Eins og þið sjáið á kortinu fórum við stundum svolitlar krókaleiðir, það er vegna þess að við báðum hana Stínu um að leiða okkur framhjá hraðbrautunum. Enda var býflugan (bíllinn leit út eins og býfluga – þú afsakar pabbi minn) næstum því búin að taka á loft nokkrum sinnum þegar við urðum að fara á vindsamar hraðbrautir.
Byrjuðum á því að keyra meðfram vesturströnd suður Svíþjóðar, komu Á þriðjudaginn héldum við svo áfram upp i Ängelholm og áfram upp í Båstad, sem er æðislegur bær (þekktur fyrir árlega tenniskeppni). Keyrðum svo þvert niður yfir Svíþjóð til Kristianstad, en þar gistum við í litlum kofa. Um kvöldið keyrðum við niður í Åhus sem er strandar og túristabær og alveg rosalega sætur. Þarna eiga margir Svíar sumar(strandar)bústaði, enda mjög flott strönd þar. Á miðvikudaginn keyrðum við svo til Sölvesborg og aðeins meðfram austur ströndinni, svo upp til Emmaboda þar sem við ætlum að skoða glerverksmiðju, þar sem maður fær að sjá menn blása glerið en það var lokað þegar við komum. Við héldum þá bara áfram til Kalmar og yfir til Öland. Þar gistum við á rosalega fínu farfuglaheimili sem við mælum virkilega með. Um kvöldið grilluðum við aftur á ströndinni rétt hjá farfuglaheimilinu. Á fimmtudaginn keyrðum við svo um Öland og skoðuðum meðal annars syðsta odda Ölands með öllum fuglaskoðunarlúðunum (greinilega mikið um fuglalíf á Ölandi og því fullt af eldra fólki með svaka kíkja svo þeir missa nú ekki af þessum fuglum). Sorry ef ég er að særa einhvern fuglaskoðunarlesanda en við skiljum ekki alveg þetta sport. Fórum einnig að skoða höllina Solliden en þar tilkynti yngsta sænska prinsessan trúlofun sína núna í sumar. Rosalega flottur garður en maður mátti ekki fara nálægt húsinu þar sem þetta er eitt af sumarhúsum kóngsins. Svo keyrðum við heim til okkar og gistum heima hjá okkur.
Þar sem Hjalti fékk loksins að kaupa sér myndavélina sem honum er búin að langa í í nokkurn tíma erum við með fullt af myndum úr ferðinni og erum búin að setja þær hérna inn á síðuna okkar. |
| Share on Facebook |
| 3 hafa tjáð sig um þessa færslu |
| Sandra sagði klukkan 21:08 þann 31.August 2009 |
| hljómar ekkert smá skemmtileg ferð! Myndirnar eru líka mjög flottar, nú langar mig enn meira í svona vél!! :) Hvaða týpa er þetta aftur? |
| Unnur sagði klukkan 09:52 þann 1.September 2009 |
| Vá þetta hefur verið æðisleg ferð hjá ykkur og ekkert smáræði sem þið hafið náð að skoða á svona stuttum tíma ;) |
| Lydía sagði klukkan 14:48 þann 1.September 2009 |
| Hææ þvílik keyrsla á ykkur sætapar en flott hjá ykkur að skoða ykkur soldið um :D Mín er bara í fyrsta skólatímanum sínum og lýst voða vel á þetta! Love á ykkur :* |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||
|
||||||
| Vinir |




2010 (2)
March (1) 
m við í Landskrona, Viken, sem er greinilega ellismellabær og áfram til Helsingborg. Héldum svo áfram til Höganäs þar sem við gistum á sæmilegu farfuglaheimili og keyrðum um kvöldið kringum nesið og skoðuðum bæina þar í kring t.d. Mölle og Arild. Þessir bæir eru rosalega sæt gömul fiskarasamfélög en lífa núna mest á túrisma. Grilluðum á ströndinni í Mölle á nýja fína ferðagrillinu okkar.
Á föstudeginum keyrðum við svo með suðurströnd Svíþjóðar. Fórum á Falsterbonäset og þar eru flottustu strendurnar sem við sáum í þessu roadtrip hjá okkur. Keyrðum svo niður til Trelleborg og þar var Palmfestivalen að byrja þannig að það voru fullt af sölubásum með allskonar dóti, mat og nammi. Heldum svo áfram til Smygehamn en það er syðsti oddi Svíþjóðar. Næsti staður var svo Ystad og svo heldum við heimáleið, fórum reyndar framhjá Lundi og komum við í Bjärred og fórum á Löngu bryggju og horfðum á sólsetrið þar.