Nýjustu færslur
 

Eldri færslur
2010 (2)
March (1)
Farið að vora
January (1)
Ný önn
2009 (18)
December (1)
Jólin bara alveg næstum því að koma
October (1)
Við erum á lífi
August (2)
Roadtrip 2009
Komin aftur til Svíþjóðar
May (1)
Maí
April (3)
Fréttir
Glad Påsk
Sól og sumar
March (3)
Fjólublátt gifs
Silja seinheppna
Söngur vs ískur
February (3)
Bolla, semla, bolla
Heima er best
Flutt á Kjammann
January (4)
Íbúð á Kjammanum
Mamma í heimsókn
Skólinn byrjaður aftur
Á Íslandi er gaman...
2008 (18)
December (1)
Bráðum koma blessuð jólin...
November (4)
Vetur í Lundi
Unnur í heimsókn
Tvö lokapróf og ein aðgerð
HÍ fílingur
October (4)
Fréttir
Prófavika
Heilaskoðun
Fyrsta heimsóknin
September (5)
Loksins
Undur og stórmerki
Verkefnin byrja að streyma
Lífið í Lundi
Sálfræðinámið og akedemískt korter
August (3)
Fréttir af okkur
Komin með sjónvarp og hjól
Komin til Lundar
June (1)
Loksins hipp og kúl
 

Vinir
 


Sálfræðinámið og akedemískt korter
Silja ritaði 3.September 2008
Jæja þá ætla ég aðeins að segja frá náminu mínu. Þetta er búið að vera nokkuð óljóst frá upphafi en núna er þetta allt að smella saman.

Málið er nefnilega að studievägledaren (hálfgerður námsráðgjafi innan sálfr.skor) sem heitir Anika og ég er búin að vera í sambandi við í allt sumar og átti að setja saman stundaskránna mína og þannig fór í veikindaleyfi rétt áður en við komum út. Þannig að sú sem leysir Aniku af heitir Eva og er alveg frábær en hún hefur aldrei unnið sem svona námsráðgjafi áður og er nýútskrifuð úr sálfræðideildinni hérna. 

Við Eva erum búnar að funda mikið og skoða alla áfangana mína bak og fyrir til þess að geta séð hvaða áfanga ég gæti hugsanlega fengið metið þó að Anika eigi í raun lokasvar komumst við að þessari niðurstöðu til að byrja með. Ég byrja á önn 4 af 10 svo ég geti byrjað að lesa einhvern áfanga þar til Anika kemur aftur.

Á hverri önn í sálfræðideildinni er oftast bara einn ca 30 eininga áfangi sem er skiptur upp í nokkra svo kallaða Delkurs (undirkúrsa) og hver delkurs er svo skiptur upp í nokkur holl eða svo kölluð moment.

Sá áfangi sem er kenndur á 4.önn er áfangi sem Friðrik (kennari við sálfræðiskori í HÍ fyrir þá sem vita það ekki) myndi kalla Félagsfræðileg félagssálfræði. Þessi áfangi kallast D er skiptur upp í þrennt, D-1, D-2 og D-3. Ég fæ hluta af D-1 metið þannig að ég þarf ekki að lesa allan áfangann og klára hann því í byrjun október.

Svo er það D-2 sem er mjög sérstakur kúrs en hann gengur út á að við erum skipt upp í 6 hópa og svo eigum við að hittast yfir allan veturinn alla veganna 16 sinnum. Ég held að þetta eigi að vera einskonar leshópur og svo leysir maður verkefni og reyndar fer maður í hóppróf og eitthvað þannig. 

Eitt af þeim verkefnum sem maður þarf svo að skila inn í lokin af áfanganum (D-2) er hópdagbók, í lokin á hverjum fundi þurfum við að fara yfir hvað gerðist í dag, hvað okkur líkaði og hvað ekki og hvað mætti betur fara. Þetta á allt að skrifast niður og svo skila þessu inn í lokin. Ég er ekki alveg búin að skilja tilgang kúrsins en held að það sé að við venjum okkur við að vera hluti af hóp og geta starfað sem hópur en ekki einstaklingur. Maður hefur frétt af hópum sem allt hefur farið í klessu og að utan aðkomandi aðli hefur þurft að koma inn í hópinn til þess að leysa úr málum (spennó).

Svo í desember byrja ég í D-3 og sá kúrs er einhverskonar lagaleg hlíð af félagssálfræðinni, önnin klárast nú reyndar ekki fyrr enn um miðjan janúar en við fáum tveggja vikna jólafrí.

Bekkurinn sem ég er í og mun eflaust fylgja mest allan tíman er um 40 manns og virðist vera mjög samheldinn og frábærir krakkar. Fyndnast er að nú erum við tvær frá litla Íslandi í þessum bekk og ég held að það sé enginn annar frá Íslandi hérna í þessu námi.

Bara svo ég held áfram :).... það er það eitt sem er mjög sérstakt hérna í Lundar háskóla. Á öllum stundaskrám stendur t.d. að maður eigi að mæta kl 10 en það þýðir í raun að maður eigi að mæta korter yfir. Þetta er akademískur korter og er mjög gamall siður hérna. Þetta tengist kirkjuklukkunum og að þegar maður heyrði í kirkjuklukkunum þá vissi maður að nú ætti maður að drífa sig í tíma. 

Annars allt gott að frétta af okkur,
Skrifa meira seinna
Koss og knús
Silja

Share on Facebook
 
3 hafa tjáð sig um þessa færslu
 
Svava sagði klukkan 22:15 þann 3.September 2008
 
hæhæ gaman að fylgjast með ykkur og fá smá upplýsingar um námið. þessi kúrs D2 virðist vera svipaður og hóp-þjálfunin sem ég var í í Verkefnastjórnunar og leiðtoganáminu, þar sem maður átti að meta sjálfan sig í hópavinnu og hvernig mismunandi einstaklingar virka saman í hóp og þroskast við að fara gegnum slíkt ferli. Stundum koma upp konfliktar sem þarf að leysa í hópnum eða fá handleiðslu ef málin verða flókin. Það er ekki alltaf auðvelt að vera í hóp, oftast er það gaman, en stundum er bara best að gera hlutina sjálfur, Eins og þú veist :). Bara svo þú vitir þá hefur þessi reynsla mín nýst vel í starfi sem stjórnandi og í vinnslu verkefna. Allt telur til árangurs. bestu kveðjur og knús M Pabbi biður að heilsa.
 
Lydía litla systir sagði klukkan 15:13 þann 4.September 2008
 
Hæhæ gaman ad heyra frá ykkur, flott námid titt Silja og gott ad tad er komid meira á hreynt hvernig allt verdur. Ertu ánægd med tetta, til dæmis hvad tú færd metid og solles? Tad er frábært ad tu skulir hafa lent í gódum bekk, tad skiptir miklu máli ;D og fínt ad hafa einn íslending til ad hjálpast ad med :D Koss og knús, Lydía
 
Amma og Afi sagði klukkan 13:53 þann 6.September 2008
 
Elsku Silja og Hjalti gaman að heyra hvað allt gengur ykkur i haginn, haldið ykkar striki og skemmtið ykkur bæði í starfi og leik. Bestu kveðjur amma og afi á Kristnibraut.
 
Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu?
 
Stjórnborð