| Glad Påsk |
| Silja ritaði 12.April 2009 |
Þar sem það er búið að vera svo gott veður hérna í Lundi, yfir 15 gráður og sól, fórum við Hjalti í göngutúr út í Nova Lund á Skírdag og keyptum okkur strandarstóla svo að við gætum nú setið úti í góða veðrinu. Vildi sýna ykkur nokkrar myndir sem við tókum á leiðinni.
Á leiðinni heim sáum við tvær hænur sem hafa flúið frá sinum bónda og voru í felum í runna við hraðbrautina. Sá nú dálitið eftir því að ekki bara hafa tekið þær með mér heim til þess að þurfa ekki kaupa egg. Mér fannst þetta ósköp páskalegt að hafa svona hænumynd hérna þannig að þið fáið að sjá hænurnar.
Fórum svo í sólbað í nýju stólunum og fengum smá rauðan lit (sumir meiri en aðrir). Loksins getum við svo broðað páskaeggin sem hafa beiðið í ískápnum frá því að mamma kom, reyndar verður nú ekkert erfitt að klára þau enda bara nr. 3 frá Nóa.
Málshættirnir: Með gleði skal harmi hindra og Tíminn læknar öll mein. Við (þá aðallega Hjalti og ég stend hjá honum) ætlum svo að elda þessar dýrindis lambalundir í páskamatinn (sem mamma kom líka með) í kvöld. Hafið það annars gott og heyrumst seinna. |
| Share on Facebook |
| 1 hefur tjáð sig um þessa færslu |
| Unnur sagði klukkan 20:36 þann 12.April 2009 |
| Gleðilega páska og verði ykkur að góðu ;) Þið eruð soddan snillingar í eldhúsinu! |
| Villt þú tjá þig eitthvað um þessa færslu? |
| Nýjustu færslur |
| Eldri færslur | ||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
| Vinir |




2010 (2)
2009 (18) 

