Best að skrifa smá færslu.
Á þriðjudaginn seinasta tók ég fyrsta prófið hérna í Svíþjóð. Mér gekk nú bara vel held ég, veit ekki hvenær eða hvernig maður fær niðurstöðuna. Reglurnar um próf hérna í Sálfræðideildinni eru nú ekki eins stífar eins og í HÍ. Maður bara mætir og sest niður á eitthvað borð og svo má maður bara standa upp eins og maður vill og henda rusli og fara á klóið. En það eru alltaf gamlar konur sem sitja yfir prófunum, ég held bara að það sé stefnan mín þegar ég verð ellilífeyrisþegi að vera prófayfirsetukona. Þær eru alltaf svo góðar og ljúfar konur.
Þegar prófið var búið þurfti ég að fara á fund með hópnum mínum og á sama tíma kom Unnur hingað, þannig hún fékk engar móttökur á lestastöðinni. En hún rataði nú heim til okkar Hjalta enda búum við 5 mín frá lestastöðinni. Svo tók við að kynna fyrir henni bæinn, hvar H&M væri og hvernig eigi að rata i Lundi. Hún fékk smá tilfinningu fyrir því hvernig það sé að vera námsmáður hérna í Lundi - að hjóla hvert sem maður fer. Við hjóluðum i Nova Lund (verslunarmiðstöð) og hjóluðum i Willys með bakpoka til að kaupa i matinn.
Þetta var nú mest afslöppun hjá Unni. Svo fórum við um bæinn og inn í Malmö og tókum nokkrar myndir sem ég set hérna inn. Á föstudagskvöldið héldum við smá matarboð og buðum Líneyju og Sigurði eðlis- og stærðfræingum i mat sem var ósköp gaman. Buðum uppá fylltar svínalundir, steikt hrísgrjón og sallat. Þau komu svo með eftirréttinn ís og brætt súkkulaði. Þannig að eftir kvöldið var maður algjörlega að springa, því þetta var allt svo svakalega gott. Mér finnst svo gaman þegar margir eru í mat og fullt af skemmtilegum samræðum. Alltaf jafn fyndið að umræðuefnið hjá íslendingum í útlöndum (og eflaust heima líka) fer alltaf út í þessi blessuðu efnahagsmál.
Unnur fór svo heim i dag, þannig að nú er best að byrja að læra enda er próf hjá mér 25 nóv. og mikið að gera í hinum áfanganum. Var sem sagt að byrja í nýjum áfanga, behandlingsteori med psykodynamisk inriktning (sem sagt meðferð með áherslu á sálgreiningu). Þetta er allt voðalega sérkennilegt, þá sérstaklega þegar maður hefur bara lært um allar neikvæðu og gagnrýndu hliðarnar á sálgreiningu, þannig að ég er dálitið föst i gamla farinu. Frekar heilaþvegin í sálfræðinni í HÍ. En ég þarf að kunna þetta því að á önn 7 (vor 2010) þá byrja ég að fá skjólstæðinga og ég verð að nota þessar aðferðir á ákveðið marga og svo hugræna atferlismeðferð á aðra skjólstæðinga.
Er farin að hlakka mikið til jólana, þá aðallega að hitta alla. Flauta og syng (hás ) jólalög á fullu. Það er ekki komið mikið af jólaskreytngum hérna í Lundi en þeir eru að undirbúa þetta, eru búnir að setja jólatré á öll torg en ekki kveikt á seríuunum. Það eru bara 5 vikur í að við komum.
Annars líður okkur bara vel. Það er nú reyndar ekkert að frétta af húsnæðismálum hjá okkur. Allar líkur á því að við verðum hérna hjá Svajunasi fram að páskum og ekkert að frétta af aðgeðramálum.
|